17.3.08

Góðan dag kæri vefur

Hæ ertu með flensu? Eitthvað vesen? Lasin kannski?

Kveðja,
Ýr

12.4.07

Ást

"Tvær manneskjur verða ástfangnar þegar þær telja að þær hafi fundið það besta sem markaðurinn býður miðað við það sem gangverð þeirra sjálfra leyfir. Duldir vaxtarmöguleikar skipta oft miklu í þessum viðskiptum, rétt eins og þegar um fasteignakaup er að ræða. Í menningu sem setur lögmál markaðarins á oddinn og metur hæst veraldlega velgengni er naumast að undra þótt ástin fylgi sömu vöruskiptalögmálum og þeim sem ráða á vöru- og vinnumarkaði."

- Erich Fromm, rómantískur nýmarxisti.

Finnst þetta ansi skondið og alls ekki vitlaust!

20.3.07

Allt að ganga upp .. til ég veit ekki hvert..

Spennandi tímar núna, heldur betur.

Ég er að flytja í nýja íbúð í 104 Reykjavík, tæplega 3ja herbergja íbúð á spott prís og dásamlegir nágrannar í kaupbæti. Einnig er undirrituð komin með vinnu á Bræðraborgarstígnum hjá spennandi fyrirtæki.

Trubblað :)