Sauma(eða partý bjór&rauðvíns frekar..)klúbbur var haldinn í samtúni í gærkvöldi og það var ógslea gaman! :) Ég held að maturinn hafa slegið í gegn, var með pastasalat með kjúkling, ólívum, papriku, rauðlauk og tómötum, síðan með heitt bruschette, og hvítlauks- og tómata brauð.. mmmm. Það var hlustað á prímus, reiði gegn vélinni, botnleðju og rauðheita tjillí pipar svo eitthvað sé nefnt... og að sjálfsögðu blaðrað og blaðrað um hina og þessa og þessa hina og aðra hina... eins og yfirleitt þegar 12 stelpur eru að hittast óáreyttar :o) Eftir tóma gleði og tómar bjórflöskur í tonnatali var skellt sér á 22 þar sem var tjúttað og trallað við góða tónlist.. ekki er vitað hvenær þær hörðustu skiluðu sér heim en undirrituð minnir að klukkan hafi verið hálf fjögur.. (reyndar þurfti ég að afla mér þeirra upplýsinga, þar sem tímaskyn og flest önnur skyn voru í frekar "léttu" ástandi á þeim tíma) Nú svo vaknaði mín 11 í morgun, og þegar þetta er skrifað er ég ótrúlega hress miðað við aðstæður, en reyndar fór allt á hvolf hérna í kotinu og ætti ég að halda áfram að taka til.. :)
Svo ætla ég að baka sjónvarpsköku til að hafa með vídeóglápi í kvöld... mmm get ekki beðið!
23.2.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli