það er komin þriðjudagur og best að segja frá helginni áður enn maður gleymir hreinlega!!
nú afmælið á laugardaginn var alger snilld! Vöknuðum eldsnemma og með stoppi í bensínstöð á Selfossi til að sníkja kaffisopa vorum við komin að Flúðum kl. 10:00 og svo brunað beint uppí rútu og byrjaði frábær ferð um sveitina.. Það var byrjað á því að fara í Skálholt og Aðalheiður og Sæmundur sungu nokkur lög og við vorum frædd um sögu Skálholts sem var bara létt og skemmtilegt og síðan var farið í fiskeldi (hvítvín og snittur) í róbótfjós (róbótmjólk; kalúah og mjólk) í Brattholt (kaffi, gos, kleinur, ástarpungar og meira af íslenskri klassík) svo stoppað til að fagna Rauðhettu og drukkinn Harðhaus (Ragnhildur kom valhoppandi úr runnum með rauða skykkju og spöng með skrauti og í körfu voru flöskur með einhverju áfengu í allskonar litum) svo var farið í Flúðasveppi og Límtré svo beint í Félagsheimilið á Flúðum og þar var afhending gjafa og súpa. Síðan voru haldnar ræður og fleira skemmtilegt!! Ótrúlega gaman!! =) ..og núna langar mig bara að komst úr bænum og ferðast! ég get ekki beðið eftir sumrinu og fara í sumarfrí!!! =o)
25.3.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli