Nú er aftur kominn föstudagur og maður er bara hress og kátur.. var að passa Selmu litlu frænku í dag uppí Vogum.. og núna eftir vinnu ætla ég að kíkja í partý til Bábu samstarfskonu þar sem fleiri samstarfsmenn munu mála heima hjá henni rautt =) Svo verð ég að vinna um helgina en annaðkvöld verður Grunge theme-party hjá Hilmari og Margréti sem er reyndar innflutningspartý líka og það verður bana stuð þar á bæ er ég viss um.. =D
Vífill er að "mannast" (hmm eða "kattast" kannski) svo mikið þessa dagana. Reyndar er örugglega fullt af hunda-genum í honum, hann nebbla hleypur á eftir dóti sem maður kastar og kemur með það til baka og bíður eftir að maður kasti aftur. Svo er hann ekkert smeykur við vatn, mér tókst að rennbleyta hann í baðvaskinum og hann malaði og malaði.. leið bara voða vel! Spurning hvort það þurfi að senda hann til kattasálfræðings sem gæti gert honum grein fyrir því að að hann er köttur...
4.4.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli