jæja best að mana sig upp í að skrifa um sl. helgi... úff.. þetta var nú meira ævintýrið!! Nú ætlunin var að labba Fimmvörðuháls, og til að byrja með gekk allt eins og í sögu. Lögðum af stað frá Skógum kl. 10:40, ringdi aðeins en allir vel búnir og hlýtt. Ótrúlega falleg leið upp með ánni, fórum framhjá einhverjum 24 fossum, algjör snilld! =) En síðan þegar við vorum búin að labba í ca. 5 klst. byrja ég að fá verk í lærið á þeirri vinstri, eins og klemmd taug, eða vöðvinn alveg spenntur þannig að ég gat ekki lyft löppinni.. ég í þrjósku minni hélt bara áfram þangað til að hræðilegur verkur var kominn í vinstra hnéð og ég gat ekki beygt það.. :( Þetta var hræðilegt, vægast sagt! En ég fékk bólgueyðandi töflur, verkjalyf og teygjuband um hnéð og hélt áfram í ca. 20 mín. þangað til tárin voru bara farin að leka og ég gat varla meir, löppin mátti ekki rekast í þá missti ég andann. Þá ákváðum við að best væri að snúa við og fara aftur að Skógum því sú leið væri ekki eins erfið og niður að Þórsmörk (sem er víst fallegasti hluti leiðarinnir og er rúsínan í pylsuendanum sem ég býst ekki við að sjá í bráð). Og Jói grey þurfti að rölta með mér til baka. En át off nóveer eftir 20 mín. brölti var hvítur Jeppi (eins og Engill!) í augsýn! og við fengum far niður! Hélt ég yrði ekki eldri og það er til guð og enn hvað ég er þakklát o.s.frv.. Í Skógum var Tjeríókíinn sem m&p Jóa eiga og við ætluðum að fara í rólegheitum yfir til Þórsmerkur og hitta hópinn þar. En ekki er úti ævintýr.. ooneiih. Við vitum margt í dag sem við vissum ekki þá.. en okkur tókst að festa bílinn í einni af jökulsánni! Bíllinn byrjaði að fyllast af vatni og enginn í augsýn. Ég æpti og gólaði.. hehehe fyndið núna en ekki þá. Hringdi í 112 og þar var stúlka sem svaraði (vildi aldrei vinna hennar vinnu) og náði hún ekki sambandi við neinn á svæðinu, né í lögregluna á Hvolfsvelli. En þetta endaði allt saman vel, komu þaulreyndir jeppakarlar á móti okkur, þeir vippuðu sér yfir ánna, Jói óð útí (brrrrrr - kalt kalt kalt!!) og fór uppá stuðarann áftaná og reyndi að grípa kaðal sem þeir köstuðu til okkar. Það gekk í fimmtu tilraun og þeir voru ekki lengi að ná okkur uppúr! Hjúkk! =o) Ég var þá enn með "112stelpuna" í símanum og hún sagði mér að hlúa að Jóa, athuga hvort að hann færi að haga sér undarlega, eða fengi lost eða væri með óráði. Hann sagði: Ýr! ég er ekki með óráði! Þá ákvað ég að reyna að slaka á.. (sem veitti ekkert af!) hehehe
Engin ummæli:
Skrifa ummæli