28.7.03

já þá er helgin liðin. Ég var ósköp róleg á föstudagskvöldið þar sem ég þreif allt og skrúbbaði í samtúninu og hafði svo enga orku í djamm um kvöldið.. sem var reyndar planið! En á laugardagskvöldið fór ég í grill til Auðar en þar voru stelpur sem hún er að vinna með hjá Póstinum. Oh hvað það var gott að drekka kaldan bjór! :o) En við fórum svo í bæinn og ætluðum að hitta Heiðu og Andra en það fór allt á mis einhvernvegin og ég datt fljótt úr stuði.. þannig ég fór heim um 3 leytið, fékk mér ristað brauð með banana og beint að sofa.. aaah hvað það var gott! (En leiðinlegt að vera soddan fílupúki og hafa ekki energy til að djamma.. vona að mér verði fyrirgefið) Í gærkvöldi fór ég með Guðný og Snorra í sund (Hr. Þunnur var skilinn eftir heima). Og eftir það bjó Guðný til æðislega Aspas-súpu.. svona týpísk jólasúpa, þykk og góð! namm namm... =o)

Engin ummæli: