17.8.03

jæja, best að halda smá dagbók. Helgin er búin að vera fín barasta.. Á föstudagskvöld hittumst við stelpurnar sem vorum að vinna á föstudag heima hjá Þurý.. Kata, Brynhildur og Ragna. Við sátum á gólfinu í kringum stofuborðið í Marsbúa drykkjuleik. Ætlaði bara að fara heim þegar þær færu í bæinn en svo endaði ég á því að kíkja með þeim. Fórum fyrst á "staðinn sem er uppá fimmtu hæð og þú getur tekið lyftu upp". Soldill uppa staður en það var skemmtileg tónlist þarna og ég og Kata fórum og betluðum hundrað kall af einhverjum uppa strákum (ætlaði fyrst að spyrja Kára Stef. sem var þarna í góðum gír að spjalla við blondínur) en uppa strákurinn missti hundrað kallinn áður en hann rétti okkur hann og ég var viss um að hann myndi segja eitthvað "Svona.. þarna hefuru hundrað kallinn" og myndi glotta þegar önnur hvor okkar myndi sækja hann á milli lappirnar á sér. En nei, hann sótti hann sjálfur og rétti okkur. Takk fyrir það uppa strákur! Málið var að ég átti fimmhundruð kall og bjórinn (N.B. lítill flöskubjór!) var á sexhundruð kall... en þá var að loka þarna og við fórum yfir á Glaumbar þar sem við héldum áfram að tjútta.
Í gær kíktu mamma og pabbi Jóa til okkar og fóru með okkur í Everest-búðina í Skeifunni og þau gáfu okkur þetta flotta tjald í afmælisgjöf!! Það er ekkert smá flott, 5 manna kúlutjald, 2 metrar á hæð og ég veit ekki hvað og hvað... Barasta trúi ekki að við séum búin að eignast svona flottan grip. Get ekki beðið eftir að komast útúr bænum og nýta þessar síðustu helgar sumarsins. :)
Í gærkvöldi var svo samó hjá Auði, hún var búin að elda geeðveikt góðan mat, sem var líka geeðveikt hollur!! nammi namm. Hún hafði m.a. tekið uppskriftir frá Grænum kost. Hún var með spelt pizzu með sólþurrkuðum tómötum, ólífum, ekta mozzarella og brokkolí, spelt pönnukökur og ídýfa með pasta... Alger snilld!
Jæja nóg í bili.. er orðin þreytt í puttunum! takk og bless :)

Engin ummæli: