Það sem ég gerði í dag var að bagsla yfir skanna sem ég náði ekki að fá að virka, fór í bankann og lín og er nú formlega búin að sækja um námslán! Ég fann stundarskránna mína á stór-vef Háskóla Íslands, en kannski er það bara afþví að ég er að byrja en mér finnst þessi vefur vera eitt stórt völundarhús. En úff þetta er að verða svo raunverulegt! :o) Fer á morgun að kaupa notaðar skólabækur af einhverri stelpu sem er að klára 1. árið. Hún furðaði sig á því að mig vantaði ekki einhverja bókina sem hún hafði notað en þá var búið að fella þann kúrs niður, og hún sagði einmitt að sá kúrs hafi verið klikkað erfiður.. þannig að ég er bara happý. Á morgun ætlum við Jói að fara á Röðul og vonandi náum við að mála þakið fyrir gömlu hjónin, en það spáir víst rigningu. Þannig að líklegast þurfum við bara að slappa af. Æj æj. (thíhíhí)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli