50. aðferðir til að skemmta sér í lyftu!
1. Hermdu eftir kappakstursbíl í hvert skipti sem einhver kemur inn í lyftuna. Hermdu svo eftir sírenum pegar einhver fer út úr henni.
2. Snýttu þér og sýndu hinum í lyftunni vasaklútinn.
3. Grettu þig um leið og þú lemur þig í höfuðið. Muldraðu svo: "Æ, þegiði þarna öll. ÞEGIÐI!"
4. Reyndu ad selja einhverjum smákökur í lyftunni.
5. Vaggadu þér í takt vid lyftuna. Láttu þig svo rekast í vegginn og hnígdu á gólfid.
6. Rakaðu þig.
7. Opnaðu rifu á skjalatöskuna þína eþa handtösku, kíktu þar inn og hvíslaðu nægilega hátt til ad hinir heyri: "Ertu med nóg loft þarna inni?"
8. Stattu þögul(l) og hreyfingarlaus í horni lyftunnar með andlitid upp ad vegg.
9. Þegar lyftan er ad nema staðar á hæðinni þar sem þú ætlar út, taktu þá æðiskast og reyndu af alefli ad opna dyrnar med höndunum. Vertu svo vandræðalegur á svipinn þegar dyrnar opnast af sjálfu sér.
10. Halladu þér upp ad næsta manni eda konu og hvíslaðu: "Bókasafnslöggan er á leiðinni!"
11. Heilsaðu öllum innilega med handabandi sem koma inn í lyftuna. Biddu þá um ad kalla þig Admírál.
12. Klóraðu þér viðstöðulaust og hóstaðu ofsalega á meðan. Geiflaðu svo vörunum og láttu sem ad þú sért ad umbreytast í apa.
13. Gerðu jógaæfingar.
14. Starðu á einhvern í lyftunni, glottu fáránlega og segdu svo hátt: "Ég er í nýjum sokkum!"
15. Dreifðu áróðursbæklingum frá Vottum Jehóva.
16. Mjálmaðu af og til. Geltu svo illilega og leiktu kött sem verið er ad murka líftóruna úr.
17. Segðu hinum farþegunum ad þú þorir ad veðja ad þú komir heilli krónu fyrir inní nefinu á þér.
18. Grettu þig og muldraðu í hálfum hljóðum: "Ah, mér er svo mál, mér er svo mál!" Svo skaltu stynja, líta vandrædalega í kringum þig og segja: "Úps!"
19. Sýndu hinum farþegunum sár sem þú hefur fengið og spurðu þá hvort þeir haldi ad það sé nokkuð byrjað ad grafa í pví.
20. Syngdu "það er leikur ad læra" á meðan þú ýtir stjórnlaust á takkana.
21. Æptu "í fallhlífarnar!" í hvert skipti sem lyftan fer niður á við.
22. Vertu med kælitösku sem á stendur stórum stöfum: "Mannshöfuð".
23. Starðu á einhvern í lyftunni í smá stund, og segðu síðan: "þú ert einn af ÞEIM!" Færðu þig svo eins langt frá viðkomandi og þú getur.
24. Þegar lyftan fer upp, taktu þá fram blokkflautu og spilaðu sálminn "Hærra, minn Guð, til þín".
25. Ropaðu. Segðu sídan: "Ahhh...þetta var gott!"
26. Vertu med leikbrúðu og spurðu farþegana "med búktali" hvort þú megir ýta á takkana fyrir þá.
27. Æddu inn í lyftuna rennandi blaut(ur) í baðslopp og med handklæði um höfuðið. Hristu höfuðið og muldradu eitthvað um það að eiginkonur/eiginmenn þurfi alltaf ad koma á versta tíma.
28. Reyndu ad fá hitt fólkid til ad syngja med þér "Meistari Jakob" í keðjusöng.
29. Þegar þögn ríkir í lyftunni, líttu þá í kringum þig og spurdu einhvern: "Var þetta bíp-tækid þitt?"
30. Segdu "Ding!" á hverri hæd.
31. Syngdu hástöfum. Berdu þér svo á brjóst og líktu eftir þokulúdri.
32. Segðu: "Hvernig ætli þessi virki?" og ýttu á rauda hnappinn.
33. Komdu med hlustunarpípu. Hlustaðu á veggi lyftunnar.
34. Teiknaðu ferhyrning med krít á lyftugólfið. Tilkynntu hinum ad innan hans sé "þitt svæði".
35. Komdu med stól.
36. Fáðu þér bita af samloku og segðu svo vid einhvern í lyftunni: "Vi´tu sjá hva' é e me' í mu''i' um á mé'?"
37. Blástu sápukúlur.
38. Segðu med djöfullegri röddu: "Grrr! Betri líkama! Ég verd ad finna mér betri líkama!"
39. Vertu med teppi og haltu daudahaldi í það. Breiddu það svo yfir höfuð þitt þegar hinir horfa á þig.
40. Hermdu eftir sprengju í hvert sinn sem einhver ytir á takka.
41. Vertu med sólgleraugu sem á stendur "Röntgengleraugu". Horfdu svo stíft á fólkid í lyftunni og glottu dónalega. Blístraðu.
42. Starðu á þumalputtann á þér og segðu: "Svei mér þá... hann er ad stækka."
43. Ef einhver kemur óvart vid þig, láttu sem þér bregði ofboðslega og öskraðu af öllum lífs og sálarkröftum: "Snertu mig ekki! Snertu mig ekki!"
44. Komdu med vatnsbyssu og sprautadu á skó hinna í lyftunni.
45. Burstaðu ósynilegar pöddur af handleggjum þínum og gargaðu: "Óged! Óged! Takið þessi ógeð af mér!"
46. Hlæðu geðveikislega í nokkrar sekúndur. Stoppaðu svo skyndilega og horfðu á hitt fólkid í lyftunni eins og þad sé eitthvad skrýtid.
47. Taktu upp merkipenna og teiknaðu skripamyndir af hinum farþegunum á lyftuveggina.
48. Þegar lyftan fer upp, hoppadu þá eins hátt og þú getur. Lentu svo med miklum dynk. Endurtaktu þetta nokkrum sinnum og öskradu: "Niður! Fjandinn hafi þad, ég sagdi NIÐUR!"
49. Skjóttu upp kryppu í einu horninu og urraðu ógnandi á þá sem koma inn í lyftuna.
50. Fitjaðu upp á nefið og þefaðu út í loftið nokkrum sinnum. Lyktaðu svo varlega af manneskjunni sem stendur næst þér. Grettu þig síðan og færðu þig eins langt frá og þú getur.
11.11.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli