1.12.03

Þetta var nú meiri dagurinn!
Ég var alveg á síðustu stundu með að klára verkefnið fyrir vinnulag.. en ég náði að skila því rétt fyrir fjögur í dag! Notfærði mér MSN og var að gera marga gráhærða með spurningum eins og „Hvernig er best að orða blehblubla?" eða „Hvaða orð er best yfir momíma?" Síðan er blekið búið í prentaranum hérna heima og ég hringdi á hina og þessa staði hér í kring og ónáðaði fólk í vinnunni vegna þess að ég vildi fá súlurnar mínar í lit! En Edda var svo góð að prenta þetta út fyrir mig. Jæja nóg í bili... þarf að sækja Jóa minn í vinnuna!

Engin ummæli: