9.12.03

Fann lista yfir 100 atriði sem þú getur gert til að panta pízzu á skemmtilegan máta... hér eru nokkur góð:

1. Ef þú ert með tónvals-síma, þá skaltu ýta af og til á takkana. Biddu síðan manneskjuna sem er að taka við pöntuninni um að hætta þessu.
2. Ljúktu símtalinu með því að segja: "Mundu .. að við áttum aldrei þetta samtal."
3. Svaraðu þeirra spurningum með spurningum.
4. Ekki segja hvað þú viljir á pizzuna - heldur skaltu stafa það.
5. Segðu "halló" ... síðan skaltu þykjast vera undrandi og soldið ruglaður í svona fimm sekúndur .. og láttu síðan líta út fyrir að þau hafi hringt í þig.
6. Segðu viðkomandi að þú sért eitthvað dapur. Reyndu að láta hann/hana lífga þig upp.
7. Skiptu um hreim á þriggja sekúndna fresti.
8. Láttu sem þú þekkir viðkomandi: "Bíddu ... vorum við ekki saman í Vatnaskógi?"
9. Byrjaðu pöntunina á því að segja "Ééééég æææætla að fáááá ............" bíddu í smástund, sláðu þig þá í framan og segðu "NEI .. ég ætla ekki að fá það"
10. Ef að hann/hún stingur uppá tilboði, segðu þá með mjög væminni röddu: "Ég læt ekki fallast í freistni yfir þínum freistandi orðum"
Svo eru margir fleiri hér

Engin ummæli: