17.12.03

jájájá.. það er fjör í fjósinu, eða eitthvað svoleiðis. Ég vakna í morgun og get ekki stigið í löppina! fer samt fram með erfiðum til að fá mér að drekka og svoleiðis.. nei nei.. á leiðinni til baka þá næstum líður yfir mig! Verkur í eyrunum, heyrði ekkert, missti næstum allan mátt, og geðveikur verkur í hálsinum þannig að ég átti erfitt með að anda. Sem betur fer var Jói ekki farinn í vinnuna og hann hélt á mér uppí rúm. Ég gat ekki hreyft mig, en svo lagaðist það fljótt. Heyrði í mömmu og hún bauðst strax til að koma til mín með hita og kæli dót fyrir löppina og verkjalyf. Gott að eiga góða að, segi ekki annað ha?!
Ligg núna uppí rúmi með hitadótið á löppinni.. með pepsí og vínber og lappann að vafra á netinu! Ef þið vitið um sniðugar síður eða eitthvað sem ég get dundað mér við.. endilega látið mig vita!
Ýr lappalúði

Engin ummæli: