Jólahlaðborðið í gær var mjög fínt, allt smakkaðist bara vel.. Ég hef reyndar ekki frá miklu að segja um það þar sem ég fór snemma heim og fór að lesa.. En sumir voru komnir í þónokkuð stuð þegar ég fór;) Í hádeginu í dag var svo fjölskyldumyndatakan, sem er brúðkaupsgjöf til mömmu og pabba, því þau eru búin að vera gift í 40 ár! geri aðrir betur! og eftir það fórum við öll á Ítalíu að snæða, nammi namm... ef maður er ekki að sprengja sig af áti þessa dagana þá veit ég ekki hvað! Síðan komum við hérna heim og ætluðum að taka til en við sofnuðum bara, rúmið var svo freistandi, rigning úti og nýbúinn að borða sig saddann... Tengdó komu í heimsókn og rifu okkur uppúr rúminu, sem betur fer! Þýðir ekkert að sofa af sér allt vit.. en ástandið á heimilinu var frekar napurt.. þar sem öll tiltekt hefur gjörsamlega legið á hakanum undanfarna daga, en það var gaman að fá þau í heimsókn;) Síðan var sko heldur betur tekið til hér á bæ, og vorum ekki lengi að því. En ég hef reynt að liggja yfir bókunum í kvöld.. en...
7.12.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli