ég fór til læknis í gær útaf því að ég er eitthvað bólgin í hálsinum, ekki hálsbólga samt.. heldur aðeins neðar, og ég hélt lengi vel að matarbiti eða eitthvað væri fast í meltingarveginum.. :/ en eftir 4 daga þá ákvað ég sem sagt að fara til læknis. Og hann heldur að ég sé með stækkaðan skjaldkritil... sem meikar pínu sens, þar sem ég er búin að vera mjög orkulítil undanfarið, með litla matarlyst og alger kuldaskræfa... hér má lesa meira um vanvirkan skjaldkritil. Fæ samt ekki að vita niðurstöður fyrr en í fyrsta lagi á föstudag..... orðin frekar pirr pirr.. :o( Væri vandræðalegt ef þetta væri svo bara bingókúla...
En aníweis þá er mín annars byrjuð að vinna á broadway um helgar sem þjónn.. og það er bara stuð og glens. Hresst fólk og fín laun barasta.. Um næstu helgi verð ég að vinna í fyrsta skipti bæði föstud. og laugard.kvöld.... when the going gets tough, the tought gets going.. var það ekki svona lagið?? allavega fannst það passa við!
Sá big fish í gær með Hrafnhildi og Heiðu, já og Hrafnhildur á afmæli í dag!! til hamingju með það skvísan mín! :o* En myndin var bara skrambi skemmtileg! ég hafði séð trailerinn og Ewan fór eitthvað í taugarnar á mér og mér fannst þetta vera einhver stæling á Forrest Gump, en hún kom skemmtilega á óvart og ég mæli með henni.. Hann fór bara ekkert í taugarnar á mér. :)
Það er vitur maður sem syrgir ekki hlutina sem hann á ekki, heldur gleðst yfir þeim sem hann á.
- Epictetus, grískur heimspekingur 50-120
jæja ég segi bara bless í bili.... hafið það nú gott!
4.2.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli