18.2.04

humm humm og sei sei.. það er nú ekki mikið gerast þessa dagana.. svaka rólegheit og gamlamannalíf hér á bæ. En reyndar á laugardaginn verður saumó og í þetta sinn í samtúni og það mun vera djammsaumó með kúreka þema.. íhaa! :D Við erum loksins farnar að hittast aftur stelpurnar, en eftir óvissuferðina í sumar (sem var aalger snilld) þá einhvernvegin datt öll skipulaging uppfyrir og við hittumst ekki aftur fyrr en í lok janúar sl. hjá Auði. Núna erum við búnar að plana árið og nokkrar nýjar bætast í hópinn.. sem er bara fínt því það komast aldrei alveg allar.. Já svo er Auður bráðum að flytja af landi brott.. :o/

Mammsla og pabbsli eru útí kanarí að njóta lífsins, þau eru ekkert smá ánægð. Það var svo gaman að heyra í mömmu, því þau voru eiginlega ekkert spennt fyrir ferðinni en svo er þetta bara aalveg yyndislegt ;) Gott hjá þeim að njóta lífsins.

Jói er búinn að vera í útvarpsviðtölum á X-inu útaf nýju plötunni þeirra.. nú og þeir eru komnir með flotta vefsíðu strákarnir.. tjekk it out. :)

Engin ummæli: