17.3.04

Við Jói erum svo dugleg þessa dagana að fara í ræktina að við eigum klapp skilið! Lauga World class stöðin er bara frábær, svo stór að maður finnur ekkert fyrir því að það séu þúsundir manna þarna inn, getum alltaf fundið einhver tæki eða hlaupabretti til að blása og púla á! ííí haaa! :)

Ég var að komast að því (með því að lesa skólapóstinn minn...) að það þarf að borga skólagjöldin 32þúsundkall núna í lok mars!! :,( -Er ekki að sjá það gerast þar sem buddan er svo þunn..... Kannski að ég taki frí næsta ár og vinn crazy.. æj kemur í ljós.

hmm.. annars er ég að vinna um helgar á broadway sem gefur af sér ágætis pening.. nema að maður er alveg ónýtur daginn eftir, alveg eins og eftir þruusu djamm. En það verður nú samt alltaf minna og minna með hverri vakt.

veit ekki hvað ég á að bulla meir.. þangað til næst... Ýr kraftakerling!

Engin ummæli: