það er nú meira hvað ég vesenast í blogger svona rétt fyrir ritgerðarskil og próf... já stóri dagurinn er á morgun! þá byrjar ballið, og maður er alveg úti að aka! UUsshhhh.... nei þetta reddast nú alveg, hef litlar áhyggjur af þessu.. (kannski að það sé vandamálið?)
En sólin skýn bjart hér á skerinu.. okkur próformum til mikillar gremju.. en best að taka sig saman í andlitinu og halda áfram!
Ótrúlegt en satt þá á ég, a.k.a. tölvuséní, erfitt með að koma tölvupósti frá lappanum yfir á borðvélina.. vefpóstur háskólans er ekki að virka (kemur ekki á óvart) og eitthvað vesen vesen..
Farið út og njótið góða veðursins.. því ekki ætla ég að gera það!
læri læri læri.....
28.4.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli