Tók mig til og litaði á mér hárið í gær. Ég er farin að klippa og lita á mér hárið sjálf eins og ekkert sé í lon og don. Hvar ætli þetta endi alltsaman veit ég ei en allavega er ég orðin eins og mamma hans Vífils! Með ljósrauðar strípur og pínu skellótt (en það er bara undir og sérst eiginlega ekkert! ;)) .. en já Þetta lukkaðist bara ágætlega þó ég segi sjálf frá! Ég á líka dökk brúnan lit til að lita undir og á eftir að gera það en þyrfti smá hjálp við það, þannig ef einhver býður sig fram þá væri það ágætt :) Já það er nú ekki að ástæðulausu sem ég er að reyna að gera mig fína. Það er nebbla nóg um að vera framundan (fyrir utan ritgerðarskrif og próflestur). Á laugardaginn er óvissuferð með saumaklúbbnum Jónunum og jisús hvað ég hlakka til! Við verðum 10 stykki og eigum að mæta með djammgallann, bikíní og svitaband um hausinn og mikið fleira klukkan hálf 2 til Auðar! Það verður víst prógram allan daginn og líklegast langt fram á nótt! Þær hafa verið duglegar við að skipuleggja þetta, þær Auður og Margrét! :o)
Á föstudagskvöldið er reyndar lokadjamm í skólanum, en ætli ég beili ekki á því..
En svo á miðvikudagskvöldið í næstu viku er svo árshátíð hjá Margmiðlun! ;)
Nóg nóóg að gera.. en eins og sést þá á ég að vera læra en er að skrifa í blogger... úff.. aldrei þreytist gamla kúin við japlið á grasinu eins og sagt er.
14.4.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli