úhh.. komin í sumarfrí
Allt í góðum gír nema Jósi Bósi Búálfur er eitthvað slappur.. með sjóðheitt enni og liggur steinsofandi uppí rúmin. Mamma og pabbi kíktu hérna við áðan og ég bakaði vöfflur. High season hjá Félagsmiðstöð Unnars í næsta herbergi við mig. Ég er að setja í þvottavélar og reyna að gera eitthvað af viti.. en samt búin að hanga í tölvunni núna í að verða klukkutíma sem er mjög mikið miðað við hvað ég hef lítið verið í tölvum þetta sumar. Góð tilbreyting, að vera lítið í tölvum þ.e. Enda er ég komin með einhvern hausverk.
Það var stuð um helgina á humarhátið. Gott að vera í tjaldinu okkar sem var eins og höll við hlið hinna tjaldanna og þvottasnúrunar gerðu inganginn tignarlegan. Það var fínt veður og engin rigning né strollufólk sjáanlegt þó víða væri leitað. Ég fékk reyndar svo illilega í magan á laugardagskvöldinu og missti af ballinu með Parket á Víkinni sem var alger synd. En við erum alveg harðákveðin í að gera þetta að árlegum viðburði.
Morgundagurinn í að pakka og ganga frá hérna. Og kveðja!
5.7.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli