Alltaf að breyta... já mér finnst það bara gaman;)
Bætti Frikka (hann var í hróaskelduferðinni sumarið 2003) inn í blogglinkana.. hann er útí Danmörku í tónlistarskóla og það er gaman að lesa bloggið hans og kommentin.. svolítið steikt á köflum!
Ég fór loksins að versla áðan í Bónus (bónan..) í Kringlunni og rogaðist ein með fjóra poka útí bíl.. Gamall maður ráðlagði mér að setja eina krónu í kerruna og skilja hana eftir útá bílastæði... hann hefur séð í hvaða klípu ég var að koma mér í en það gékk nú samt. -Ekki dugleg? Loksins er til eitthvað af mat hérna! ....og ég get valið um nokkra hluti til að hafa í kvöldmatinn... kjúkling í TikkaMasala, bakað pizzu með skinku, pepperoni og fl, hakk og spaghettí (sem er reyndar búið að vera einum of oft á boðstólnum...:o/) En já bara allt á góðri leið hérna.. :o)
Verst hvað ég hef haft litla eyrð í mér til að lesa fyrir skólann, en ég bara verð að gjörasvovel.. bíta á jaxlinn og líma augun opin með uhuu... :o/
bless í bili
23.9.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli