12.9.04

Vá var ekkert smá þreytt í gærkvöldi! fyrst var ég að vinna frá 9-13 og fór þá með Kristbjörgu í kringluna og við þræddum fullt af búðum til að finna afmælisgjöf handa mér :) Fengum okkur síðan kaffi og köku ;) Eftir það fór ég uppí grafarvog að hjálpa Ingu við að þrífa því þau eru að fara að selja húsið sitt og ætla að byrja að sýna það sem fyrst. Á leiðinni heim rúmlega sjö kom ég við í júróprís og verslaði aðeins inn.. kom heim, eldaði kjúlla quesadillas.. mikið rooosarlega er það gott!! ARG langar í svoleiðis núna ;) ..sofnaði eiginlega strax í sófanum eftir matinn.. yfir Matrix.

Engin ummæli: