28.11.04

Í fréttum er þetta helst...
Jói mun setjast á skólabekk eftir áramót.. hann komst inní Tækniháskólann! Alveg frábært

Jólahlaðborð í Perlunni sl. föstudagskvöld.. vá nammi nammi namm! Klikkaður matur.. og eftirréttirnir, ég óskaði þess að geta borðað endalaust. Alsæla! ;) Reyndar þá smakkaði ég líka "mat" sem var mjöög vondur líka.. lummur með rauðum kavíar.. ekki góðar.. en svarti kavíarinn var fínn. Síðan lét Jói mig smakka Lunda eða eitthvað álíka.. og það var ógeð! Blóðbragð af því og mér leið eins og ég væri að tyggja tunguna á mér eða hendina.. ekki spennandi. bjakk. En samt gaman að smakka eitthvað nýtt.
Var að læra í gær og í dag.. samt búin að vera að fikta í blogger eitthvað pínu og komið nýtt dæmi hérna til hliðar.. svo endilega skrifa eitthvað þar og pósta eitthvað af þessum stórkostlegu brosköllum... en jæja skólastelpan farin að lesa.. later.

Engin ummæli: