Góðan Daginn Halló.
Trommuleikarinn í Hatesphere og kærastan hans gistu hérna í nótt og munu gista yfir helgina. Þau eru bara fín og down to earth. Hann málar myndir og hún er félagsráðgjafi! Þungarokkstónlist er ekki hennar bolli af te, s.s. eins og hjá mér. Gott að vita að maður er ekki einn í heiminum. Þau fóru núna á 3 bílum hinn gullna hring. Það sprakk dekkið á vectrunni, ólundans vesen. En varadekkið er komið á og allt í sóma. Ég er hérna heima að bagsla við Marx. Fer að vinna í kvöld, fyrramálið og á sunnudagskvöldið... en er að reyna að fá því breytt, svo Karl fái sómasamlegri meðferð.
Við Jói fórum í nótt að hengja upp plaggöt fyrir tónleikana á allan Laugarveginn, komum heim að verða 3.. það var bara helv gaman. Ég ætla að kíkja á Grand Rokk annaðkvöld, og sjá þessi herlegheit.
5.11.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli