16.11.04

Hlæjandi að óförum annara.... þannig líður mér best!

Nei ég segi það nú ekki alveg.

Ég var áðan ekki í neitt voða góðum fíling að keyra uppí vinnu og komin þessi brakandi snjókoma.. svo allt í einu birtir yfir öllu heilabúi mínu. Bifreið við hliðina á mér dúaði upp og niður og forvitni mín fékk mig til að mjaka mér aðeins áfram til að sjá betur hvað væri að gerast í viðkomandi bíl. Bílstjórinn átti í miklu basli með að loka framrúðunni en hún var alveg föst og galopinn glugginn. Og það snjóaði og snjóaði inní bílinn. Greyið karlinn var orðinn beyglaður í framan. Hann veit örugglega ekki hvað þessi vandræði hans komu mér í miklu betra skap. Takk fyrir það gamli.

Afhverju samt fannst mér þetta fyndið? Var það vegna þess að ég fékk staðfestingu á því að aðrir hafa það verr en ég? Er ég þá ekki bara vond??


Engin ummæli: