25.11.04

Mér hefur alls ekki liðið vel undanfarna daga.. prófkvíði, vonleysi, þunglyndi, sjálfsásakanir og fleira vegna frestunaráráttu minnar gagnvart skólanum.. þetta er alveg ótrúlegt hvað ég geri sjálfri mér. Og auðvitað bitnar það á þeim í kringum mig líka. En loksins núna áðan settist ég niður og sendi kennurunum mínum tölvupóst og spurði um það sem mig vantaði að vita. Hvort að það væri of seint að skila ritgerðinni, hvað sé best fyrir mig að gera og svo framvegis. Ég þarf að fara í 3 próf. Fyrst er það Ingangur að fjölmiðlafræði og er það heimapróf í 2 daga.. hef aldrei farið í svoleiðis og ég hef ekki mætt vel í þá tíma. *skömm* Síðan er það Kenningar í félagsvísindum... þarf aldeilis að liggja yfir bókunum og klára ritgerðina sem ég kláraði aldrei, á samt ekki mikið eftir. Svo er það Inngangur að stjórnmálafræði sem ég er alveg viss um að ég nái ekki.. en ég ætla að reyna mitt besta úr þessu og þá taka prófið aftur bara í ágúst, eða sitja áfangann aftur. Það mun vonandi enginn deyja ef það gerist.

Svo er ég að hugsa mikið um að fara að vinna eftir áramót og taka jafnvel einn áfanga með. Langar ekki að vera í þessum vítahring sem ég skapa.. Langar að laga mig áður en ég held áfram.. ef það er hægt.... ?

Engin ummæli: