2.12.04


Ekkert smá gaman að finna orlofsreikning sem ég var búin að gleyma.. enda með innistæðu uppá 14þúsund og eitthvað! Ætli það þýði að ég geti átt allar jólagjafirnar sjálf sem ég keypti í hádeginu í dag ?? Og keypt nýjar fyrir þennan surpræs pening ? Mig langar til að eiga þær allar..... *hux hux*

En núna er ég í heimaprófi áfangans Inngangur að félagsfræði og ég ætla að taka það með vettlinga tökum í dag.. er það ekki annars að taka hressilega á því, eða taka til hendinn, taka eitthvað með stæl eða taka strætó niðrá klepp. Nei þarna hitti ég ekki í mark. Tók feilskot. Jafvel tók eitthvað í misgripum með vettlingum. Fingravettlingum.

bless farin að læra!!!
Ein steikt í dag

Engin ummæli: