16.12.04

Þá er ég búin í prófum.. og það gekk svona syngjandi lala í dag. Svaraði 30 krossum af 40 (er dregið niður fyrir ranga krossa), svaraði þrem af sex 5% spurningum, og svo einni 30% spurningu.. um 75% af prófinu... Það vonandi sleppur!

En meira um stjörnuspeki.... Þetta eru glefsur af vísindavefnum

Stjörnuspeki virkar ekki og spárnar eru því ekki sannar. Ekki hefur verið sýnt fram á fylgni milli hegðunar og persónuleika manna og fæðingardags einstaklingsins svo óyggjandi sé. Fæðingardagur hefur því engin áhrif á persónuleika manna.

Vegna framsóknar jafndægrapunkta hefur Dýrahringurinn breyst í dag á þann hátt að sólin er ekki í "réttum" merkjum á tilteknum tíma. Af þessu leiðir að þegar fólk les stjörnuspána sína, er það að öllum líkindum að lesa vitlausa stjörnuspá. Hin þrettán raunverulegu merki Dýrahringsins eru því sem hér segir:
  • Fiskarnir -- 12. mars til 18. apríl
  • Hrúturinn -- 19. apríl til 13. maí
  • Nautið -- 14. maí til 19. júní
  • Tvíburarnir -- 20. júní til 20. júlí
  • Krabbinn -- 21. júlí til 9. ágúst
  • Ljónið -- 10. ágúst til 15. september
  • Meyjan -- 16. september til 30. október
  • Vogin -- 31. október til 22. nóvember
  • Sporðdrekinn -- 23. nóvember til 29. nóvember
  • Naðurvaldi -- 30. nóvember til 17. desember
  • Bogmaðurinn -- 18. desember til 18. janúar
  • Steingeitin -- 19. janúar til 15. febrúar
  • Vatnsberinn -- 16. febrúar til 11. mars

Ýr að geispa eftir prófin.


Engin ummæli: