30.12.04

Fór á hessa í bíó í gær.. gaman!
Þvottaleiðangur uppí Hafnarfjörð eftir vinnu í dag því þvottavélin okkar hætti að nenna á aðfangadagsmorgun.. Já það eru fleiri sem vilja frí en við mennirnir.
Síðan fórum við uppí Grafarvog þar sem við drukkum enn meira kaffi og snæddum kökur hjá Ingu sys. Og svo prófaði ég eyetoy með Sigga, Ingvari og Ingu. Mikið spriklað og hlegið! Mig langar svo til að eignast þennan leik! Þetta er frábær leið til að hreyfa sig og púla og maður gerir það án þess að fatta það.. og allt í einu nær maður varla andanum! Frábært wörkát!

Engin ummæli: