24.1.05

Að þessu sinni verður útgefið í annað sinn ljóð eftir mig sjálfa. Það fjallar um þreytu í samfélaginu og þar sem valmöguleikar eru oft óendanlegir. Og í lokin vitna ég í sjálfa mig. Mér finnst það eiga við, þar sem ég vaknaði afskaplega snemma í morgun og þrátt fyrir að hafa farið óvenju seint til rekkju. Og að auki hafði ég drukkið rauðvín, Jóa til samlætis við kertaljós af öllum gerðum. Afskaplega notalegt. En án allra vefjalenginga, gerið svo vel:

Sósujafnari og salsa
skrítin blanda.
þú sagðir ekki góður
eintómur.
Mmm salsa.

Að lestri ljóða loknum skal ég varpa út á heimsvefinn þeirri víðtæku spurningu hvort ferðinni skal haldið í ræktina eður ei? Og ef svo er, væri ráðlegt að líta yfir sjónvarpsdagskránna fyrst til að gleyma sér á hlaupabrettinu yfir froðu sjónvarpstækjanna? Eða væri ráðlegt að halda áfram að beita fingrunum á lyklaborðinu í þeim tilgangi einum að tefja fyrir lesendum? Því miður get ég ekki gefið ykkur mínúturnar aftur, en það skal reynt í framtíðinni með hjálp góðra manna. Sendið mér helst emil til að minna mig á það.

p.s. ef þér dettur í hug nafn á ljóðið eða vilt semja nýtt þá í skiló með það :)

Engin ummæli: