6.1.05

Fænalí! Hitalaus þegar ég vaknaði í dag. En ég er ekki komin 100% á fætur.. íllt í eyrunum og hausnum og með sáran hósta sem nær niður í lungu. En ég get núna drukkið heitt te án þess að svitna því um leið... hmm jammmííí.


Við skólakrakkarnir hér á bæ gláptum í gærkvöldi á Eternal sunshine of the spotless mind. Two thumbs up. Eitt atriði sem fór í taugarnar á mér en Jói var ekki sammála. En við vorum sammála um að þetta væri snilldar mynd.
Í dag er planið hjá mér (fyrir utan að drekka te og snýta mér) er að horfa á heimildarmyndina John's not mad.

Byrja í skólanum 17. janúar. Lýst mjög vel á kúrsana sem eru kenndir núna. Hlakka mikið til að byrja! :o)

Engin ummæli: