3.1.05

Ýggí Must-Dos 2005

1. Elda sjálf fisk og borða hann a.m.k. einu sinni. Það væri framför frá árinu 2004.
2. Rækta sjálfa mig, með sjálfsrækt og ræktinni. (Helst verða eins og Britney Spears um magann, það væri mjög svalt, en ætla samt ekki að vera fúl ef það gerist ekki).
3. Flytja.
4. Kaupa dót og túnfisk handa Vífli.
5. Byrja að lesa fyrr en rétt fyrir próf.
6. Hætta að lesa um sjúkdómseinkenni á Doktor.is og fá paranoju um að ég sé pottþétt með einhvern sjúkdóm.
7. Hætta að stelast til að reykja eins og bjáni.
8. Fara til tannlæknis :(
9. Eignast uppþvottavél og þurrkara. (En eins og með Britneybellíinn þá ætla ég ekkert að stressa mig á því)
10. Hafa það huggó.

Engin ummæli: