Skammdegisþunglyndið er skollið á. Oh. En þá er best að vera góður við sjálfan sig og reyna að gleðja sálina ekki satt? Ég barasta verð að einbeita mér að því skemmtilega og góða sem er að gerast. Eins og
1) Árshátíð næstu helgi hjá NTV, þar sem bæði Jói og Guðný eru að kenna. Matur og drykkur á "Café eitthvað" á Lækjargötu ;o)
2) Spilakvöld með stelpunum vonandi fljótlega og kannski við spilum aftur Catan með Jóni Karli og Gullu.. hver veit!
3) Hitta Hlédísi æskuvinkonu. Já og Elínborgu og Auðunn líka. Löngu kominn tími á það.
4) Heimsækja Eddu og Krimma í vikunni.
5) Ræktin maður, bodycombat íííhaaaaaaa.... :)
6) Durkheim, Weber og Marx bíða spenntir eftir því að ég lesi um sig...
7) Jói á miða í Lúxussalinn í Smárabíó og líka miða í leikhús sem við eigum eftir að nýta okkur.
8) og eitthvað meira en myndin sem ég ætla að glápa á er byrjuð í imbanum! Góðar stundir kæri þú.
9.1.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli