21.2.05

Ráðgjöf eða ekki ráðgjöf?

Ég er komin með sumarvinnu! jei, gott að hafa ekki áhyggjur af því meir. Ég verð líklega á næturvöktum júní og júlí! Það verður skrítið en samt eitthvað betur borgað og það kemur sér vel fyrir öreiga sem eru að "kaupa" sér íbúð! Nei nei.. peningar eru ekki allt og við erum bara fjandi rík. Planið er að losa okkur við bílinn, koma honum á verkstæði á næstu dögum og svo á söluna með þig kallinn. Þá mun líka birta yfir greiðslumatinu okkar;)
Ég er líka mikið að velta fyrir mér náminu.. er að verða svo veik fyrir félagsráðgjöfinni. Var að skoða áðan námskeiðin, og ég get nýtt flest námskeiðin sem ég er búin með í ráðgjöfina. Stefni á að kíkja til námsráðgjafa á morgun því að félagsfræðin er meira um rannsóknir, kenningar og aðferðafræðina sem mér finnst mjög áhugavert en þá er ráðgjöfin meira á mannlegu nótunum. Og mig langar að vinna með fólki en ekki pappíra í framtíðinni. En nóg um mig, hafðu það gott!

Engin ummæli: