Ærnafnabanki
Ef einhver hefur vitað af þessu, afhverju léstu mig ekki vita!? Það er til ærnafnabanki! Nafn eins og Skrípa er eitt af mörgum sem byrja á S! Já, maður lærir svo lengi sem maður lifir.
Ætli ærnafnabankinn og mannanafnabankinn verði sameinaður í framtíðinni? Ef ég myndi eignast dóttur einhverntíman gæti ég skýrt hana Smáfætt Ömurleg, Æla Þokkadís eða Dódó Fita.
Það væri magnað.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli