Tilgangurinn fundinn
Frábær tilfinning c",)
Ég er eiginlega viss um að það sé komið! Ég veit núna. Ástæður og tilgangur, meiri en áður.
Það var spákona sem sagði við mig á unglingsaldri að ég væri ljósberi og að mitt hlutverk á jörðinni væri að hjúkra og hjálpa, þó svo ég færi ekki í hjúkkuna eða sjúkraliðann. Hún sagði líka ýmislegt annað sem var alveg satt um þáverandi fjölskylduaðstæður mínar. Þessi spákona var með stóran bjór við hönd og sátum við á Fantasíu við Laugaveginn. Hún var feitlagin, með krullað hár og í víðum skræbóttum fötum og fullt af skartgripum. Kristalkúluna hefur hún líklega skilið eftir heima :o)
Þó ég sé ekki byrjuð og ljósbera upplifunin ekki komin þá fer að koma að þessu á næstu dögum. Dagurinn í dag var nokkurs konar undirbúningur sem ég hafði mjög mikið gaman og gagn af.
Þó ég sé ekki byrjuð og ljósbera upplifunin ekki komin þá fer að koma að þessu á næstu dögum. Dagurinn í dag var nokkurs konar undirbúningur sem ég hafði mjög mikið gaman og gagn af.
Það sem ég þarf að tileinka mér er meðal annars:
- Fordómaleysi.
- að allir eru jafnir.
- að taka tillit.
- að reyna að koma í veg fyrir eða lina þjáningar fólks.
- að sleppa forræðishyggju.
Það sem ég gerði í dag var að sitja námskeið hjá Rauða Krossinum varðandi sjálfboðaliðavinnu. Þar voru alls konar fyrirlesarar sem fræddu okkur meðal annars um dóp, bráðamóttökur, úrræði fyrir heimilislausa, sjálfboðaliðastarf, nauðganir og fl.
Ég hlakka mikið til að byrja, en þetta verður erfitt en um leið gefandi :o)
Markmið Rauða Krossins. Vilt þú gerast sjálfboðaliði? Fræðsluefni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli