5.3.05

Blogga til að blogga... enginn tilgangur með þessu pósti

Bikardrottning

Dula umlýkur konu þessa. Hún leyfir ekki hverjum sem verður á vegi hennar að kynnast sér náið. Hún er góð manneskja en dreymin oft á tíðum. Hún á það til að dreyma um eigin framtíð og annarra ómeðvitað. Hún býr yfir styrk sem er ekki auðsjáanlegur á neinn hátt og gáfuð er hún. Konan er viðkvæm oft á tíðum og býr yfir þeim hæfileika að vera fær um að hlusta vel á undirmeðvitund sína þegar kemur að því að kynnast öðru fólki.Hún kann að virðast skrýtin en það er eingöngu misskilningur þeirra sem þekkja hana ekki og fá eflaust aldrei tækifæri á því.Hún er skapandi, gjöful og góð alla leið.

Af spámanni.is

Engin ummæli: