9.3.05

Er hlaupin ein

Eftir Afbrotafræðitímann í dag komu sálfræðnemar með spurningalista og við Edda ákvaðum að láta gott af okkur leiða og strunsa ekki út heldur sitja rólegar og svara. Spurning nr. 2 var hvort að ég væri einleyp eður ei. Það var vírd að krossa við einhleyp.. svo sá ég Eddu og henn leið nákvæmlega eins held ég. Mjög skrítið hvað við erum í sama pakkanum. Hún er nánast flutt hérna inn, sem betur fer, því gott að fá einhvern í skarðið (hún sefur í sófanum svo ekkert mehmeð það) Fyrir utan það þurfum við líka að fara að drífa okkur í að skrifa ritgerð fyrir Stjórnun, vinnuskipulag og vinnumenningu, þannig við verðum hvort eð er að vera saman aaallan sólarhringinn.

En fyrst núna þarf ég að klára ritgerðina sem ég er að vinna í núna um stress-factora, bara gaman og áhugavert. Skil föstudag... ú þarf að drífa mig...

Mér líður vel :o)

Hafið það gott sem lesið ef einhverjir eru....

Engin ummæli: