Gleðilega páska!
Nú styttist í sumarið og þá er um að gera að plana vel því hægt er að velja úr hinum ýmsu skemmtunum. Ég hef ekki efni á að fara út til sólarlanda en fer vonandi í eina viku til DK í lok ágúst/byrjun sept, en það fer eftir því hversu slæmur fjárhagurinn verður.. trúðu mér hann verður slæmur en hversu slæmur er spurningin. Til að krydda lífið og tilveruna hér á klakanum í sumar er hægt að sækja heim m.a. færeyska, danska, írska, franska og humar dagar víðsvegar um landið.
Ég hef ekki ferðast mikið um landið síðustu ár þó ég hafi farið hringinn og til Vestfjarða þegar ég var krakki í bleikum jogging-galla. Borðaði t.d. sviðarsultu með mömmu og pabba í lautarferðum og sá sterkann mann lyfta stórum steini í einhverri fjöru. Einn morgun í gamla gula tjaldinu vorum við vakin upp af belju sem var að sleikja tjaldið og ég man eftir graskögglunum og slefinu eftir hana á fortjaldinu. En í minningunni var líka alltaf svo gott veður, og allir brosandi og kátir.
Fyrir utan skemmtanirnar er ansi margt framandi úti á landi sem vert er að skoða fyrir svona Reykjavíkurkellu úr Breiðholtinu eins og mig. Það er t.d. hægt að gera könnun á því hvernig nafnið Bogi er borið fram, því það er ekki alls staðar eins gert. Ég segi Boji en sumir Boouhi, sem ég get alls ekki borið fram.
Það er líka hægt að sækja námskeið út á land, eins og t.d. þetta hér þó ég persónulega hef ekki mikinn áhuga á að borga fyrir né eyða 2 tímum í það, en það vill kannski utanbæjar fólk.. hvað veit ég.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli