12.3.05

Linsudrama

Óli brósi og fjölskylda eru búin að kaupa gamalt hús í miðbæ Hafnarfjarðar. Er svo ánægð fyrir þeirra hönd;) Svo er Inga systir og fjölsk. flutt uppí Árbæ í æðislegt hús, hlakka til að geta hjálpað þeim að koma sér fyrir. Er líka búin að mála eina mynd sem ég held að muni sóma sér vel á einhverjum veggnum hjá þeim :o)
Þó að það sé búið að vera mikið að gera í skólanum þá hef ég samt getað málað aðeins með því. Dýrka það, og ég er líka virkilega ánægð með það sem ég er að gera. Gerist ekki betra.

Í gærkvöldi á tilteknum bar tókst mér að týna báðum linsunum mínum... í einu! Og þeir sem mig þekkja vita að ég er staurblind, nærsýn með -5,75 á báðum. En þær fundust, báðar! svo var ég að labba inná klósett til að setja þær í augun þá missi ég aðra! Þá fékk ég lánað vasaljós, og grúfði mig niður þessum hot shot bar þar sem fræga fólkið chillar! Barþjónninn sem var svo góður við mig lánaði mér það og sagði mér bara að útskýra fyrir fólki að ég væri með atriði í "Strákunum". Og ég fann hana! aftur! en hún var orðin hörð og uppþornuð og brotnaði þegar ég tók hana upp. Svo gaf barþjónninn góði mér bjór.
Hitti svo Ítali og ég talaði mjög ryðgaða ítölsku en vá hvað það var gaman. Mun kannski hitta þá kannski aftur, sé til.

En nú læra! :o)

Engin ummæli: