15.3.05

Lærdómskuða

Svaf vel í nótt :o) Obbo gott að sofa vel.
En nú þurfum við Edda að glitto pitto á la ditto! Ritgerðinni skal skilað á fimmtudag þó svo að nemendur í útlöndum fá freset á rassinn. Já ég er í bullu stuði :o)
Er að passa Karítas litlu og er hún alveg einstaklega góð hjá mér;) Ég mun sóma mig vel sem mamma ef einhverntíman verður af því. Hún eldaði handa okkur tréliti í morgun og núna hef ég eldað handa okkur buff, með grænmeti og hrísgrjónum. En hún er steinsofandi núna.. krúttípúttið.
Þá er bara að finna efni um samband vinnu og einkalífs og má finna ýmislegt hér um hið gullna jafnvægi.

Hafið það gott og farið vel með í ykkur í þessum kulda...

Engin ummæli: