Meðvirkni
Ertu meðvirk/ur ? tjekk it.
Guðný, Kartías og ég fórum uppá Skaga í kvöld og hittum þar Láru Bryndísi, Aron, Heiðu, Arnþór og Snæbjörn. Borðuðum bestu pizzu í heim og salat með. Ávexti í eftirrétt. Svo kaffi og nammi. Maður er náttúrulega ekki eðlilegur. Hef alltaf geðveik lyst núna á kvöldin, en eiginlega enga á morgnana og fyrripartinn. Hef ekki hugmynd afhverju, en þetta hefur örugglega ekki drepið neinn svo ég er ekki með miklar áhyggjur.
Jói er á árshátíð thí, og vonandi er hann að sletta úr klaufunum;) Árshátíð félagsfærði nema er á laugardaginn, en þar sem ég er að vinna á laugardaginn frá 8-16 og svo aftur frá 18:30-21:30 þá verð ég að sætta mig við að mæta bara á ballið. Og ég veit ekki betur en að við Edda skellum okkur báðar. En svo á sunnudag er ég líka að aukavinna, 2 stubbar.
En mig langar svo að fara eitthvert og sjá Idolið annaðkvöld.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli