7.3.05

Nauðsynlegar breytingar

Meyjan - Ársspá 2005

Meyjan er sjötta merkið í dýrahringnum, breytileg jörð.
En breytileikinn gerir þig án efa eirðarlausa/n fyrri hluta árs og verður til þess að þú hrindir af stað svokallaðri umbreytingu á orku og upplýsingum með réttu hugarfari fyrir vorkomu. Nýr kafli bíður þín en hefst þó eigi fyrr en gamlir siðir og úrelt viðhorf gleymast. Allt sem þú rannsakar verður mikilvægt í lífi þínu og leiðir þig áfram árið framundan.

Í byrjun nýs árs birtist reiði innra með þér sem þú ættir að huga betur að árið 2005. Stærsti vandi þinn á tilfinningasviðinu er að þú viðurkennir sjaldnast neikvæð líðan þína. Annar vandi þinn er sá að þú óttast að tjá tilfinningar þínar. Þú kallar eflaust erfiðar tilfinningar sem ólga innra með þér: stress, áhyggjur, þunglyndi, höfnun, pirring eða óvild og af því að þú óttast þessar tilfinningar hefur þú veitt þeim viðurkenndan farveg ef svo má að orði komast. Þér er ráðlagt að beina þessum umtöluðu tilfinningum út á við en alls ekki beint inn á við. Í marsbyrjun tjáir þú tilfinningar þínar (reiði) jákvætt og hefur þar með örvandi áhrif á sjálfið og samhliða því birtist hérna merki um nauðsynlegar breytingar sem efla þig og hvetja til að takast á við sjálfið og endurmeta líf þitt (áherslur, viðhorf).

Þér býðst árið 2005 starf við að gagnrýna (bókmenntir, kvikmyndir) og
þú ferð án efa fjölmargar stuttar ferðir í hagnýtum tilgangi vegna starfsins í janúar og febrúar ef marka má stjörnu meyju fyrir árið framundan en hugaðu vel að því að þú veist best hvað borgar sig og hvað er tímasóun og mundu að þú ert fær um að treysta á skarpar gáfur þínar.

Síðari hluta árs áttar þú þig á að hugmyndaflug þitt er mun mikilvægara en staðreyndir og á það vel við starfið/námið. Þú veist innra með þér að þar sem kærleikurinn fær blómstrað þar mun ríkja jafnvægi og síðari hluta árs nýtur þú fullkomins kærleika með fjölskyldu þinni. Farsæld er í nánd árið 2005 og hringur nær endum saman en þig hefur dreymt um að upplifa þetta jafnvægi lengi vel. Þú fyllist af krafti og jákvæðri orku sem ýtir undir jafnvægi þitt og vellíðan.

Þú munt upplifa ómælda ánægju og gleði árið 2005 svo sannarlega. Líf þitt ýtir undir áhyggjuleysi, fögnuð og frelsi.


-Einmitt það sem ég þarf að gera núna er að efla og ýta undir áhyggjuleysi, fögnuð og frelsi. Þetta með byrjun mars á mjög vel við því við Jói erum að hætta saman sem par. Ég trúi því að við verðum vinir alla tíð , því hann er minn besti vinur. Æj en samt er ofboðslega erfitt að standa í þessu...

Engin ummæli: