Rektorskosningar H.Í.
Sæl og bless til sjávar og sveita.
Ég var að frá tölvupóst frá Ágústi sem er að bjóða sig fram til Rektorsembættisins, og virkar hann fínn í starfið. Hann hvatti nemendur til að senda sér tölvupóst og hafði meira að segja gsm númerið sitt í póstinum. Hér eru kaflar úr fyrirspurn minni til hans. (ég nennti ekki að lesa alla stefnuskránna)
Sæll Ágúst,
Gangi þér vel og til hamingju með þessa fínu heimasíðu....
..Ég veit að það er í mörgum náskeiðum ekki lokapróf en ég hef trú á að
verkefnavinna og jöfn vinna yfir önnina myndi skila sér betur til nemenda.
Margir berjast við prófkvíða, lesa yfir sig rétt fyrir próf og rétt skríða og
fl. Einnig myndi það þjappa nemendum saman, og fólk kynnist því að vinna
saman að einhverju sem það hefur áhuga á. Eykur það ekki líka félagsauð?
Því þá sjá nemendur jafnvel að þeir hafi áhrif útí samfélagið og jafnvel
þeir feimnu eignast vini. Við nemendur erum svo lokuð að við bjóðum ekki
góðan dag, en við myndum gera það ef við litum á þetta sem vinnustað
"okkar".
..Eins og í Vesturbæjarskóla er verið að einstaklingsmiða námið eftir þörfum hvers nemenda, á viku basis, en samt um leið eins próf fyrir alla og allir verða að ná sama árangri, sem er að mínu mati úrelt og ætti að breyta. ...val ætti að vera frjálsara..
Þá geta nemendur frekað hagað sínu námi eftir sínum eigin þörfum og hugsanlega fundið sig betur í náminu. Og þar af leiðandi litið á Háskólann sem vinnu stað "sinn" .
Ég vil gjarnan fá að heyra þína skoðun.
Gangi þér sem best!
Bestu kveðjur,
Ýr Gísladóttir.
Ef ég myndi líta eins á H.Í. og vinnustaði sem ég hef unnið á þá myndi ég bjóða þeim sem ég væri búin að hitta oft og er í saman námskeiði önn eftir önn góðan dag.. en nemendur við H.Í. bjóða ekki góðan dag, og þar með talin ég. Sem er bara fúlt og týpískt Ísland. En þetta þarf alls ekki að vera svona.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli