24.4.05

Vesen að lesa krot

Mig vantar nýjan leiðarvísi um það hvernig á að bregðast við hinum ýmsu uppákomum í lífinu. Fínt ef hann er á íslensku með indexi og blaðsíðunúmerum og að hann passi í rassvasa. Hann má helst ekki kosta mikið því ég er námsmaður og ekki enn komin með sumarvinnu.

Minn leiðarvísir er svo illa skrifaður og óskiljanlegur að ég get ekki farið eftir honum. Svo er búið að krassa yfir fullt og skrifa aftur ofaní. Fram og til baka. Tómt vesen. Því veit ég oft ekki í hvort fótinn ég á að stíga og hvert ég á að stefna í lífinu. En það hlýtur að reddast. Þarf bara skiljanlegri leiðarvísi.

Engin ummæli: