Dansgólfið er staðurinn

Edda á dansgólfinu í gærkvöldi
Ég meiddi mig í hnénu og ég veit ekki hvort ég ætti að fara í vinnuna eða hvað? Vatn á milli liða og eitthvað vesen. Get ekki rétt alveg úr því, né beygt það mikið. En það lagast örugglega fljótt.
Aðeins 5 dagar í DK. Jibbí.
Ég vildi að ég væri ekki fordómafull, ég er ekki að meina kynþáttadæmi, bara svona fyrir ýmsum týpum.
Ég mundi eftir mynd sem ég horfði á aftur og aftur þegar ég var lítil. Poppaði allt í einu uppí hausinn laglína úr myndinni þegar ég var að horfa á aviator *geisp* en línan var "Springtime for Hitler in Germany"- mjög steikt. Ég gúgglaði og fann hana, langar þvílíkt að sjá hana aftur og hún fær meira að segja góða dóma á imdb. Hér er hún; The producers. Hún fjallar um 2 gaura sem eru að reyna að finna handrit að söngleik til að sýna á Broadway til að græða peninga. Þeir velja svo handrit um Hitler og útfæra það sem gamansöngleik, og nasistagaurinn handritshöfundurinn brjálast í salnum því sýningin átti ekki að vera grín heldur fúlasta alvara.
Ég hló að þætti Sylvíu Nótt í gær. Svo finnst mér Guðmundur Steingríms flottur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli