Já já
Áhugavert finnst mér.
Fór annars í Laugardalslaugina í dag með Hlédísi og Loga, mjög fínt, eins og maurabú. Alltaf gaman að vera staddur þar sem mannlífið er. Hitti þar gamlan vinnufélaga sem ég hef ekki hitt lengi. Síðan labbaði ég í vinnuna í góða veðrinu og ég sótti í það að ganga í skugga vegna hita. Núna er ég í vinnunni og var að spjalla við færeyinginn hér. Hann spurði mig: Af hverju ertu að gráta? Ég sagðist vera að gráta því ég ætti hvorki kærasta, ástmann né sálufélaga.. Þá sagði hann: nú, hentir þú honum á haugana? - Nei ég fór bara með hann í endurvinnsluna sagði ég, með dósunum. Því svaraði hann: já þú hefur aldeilis nýtt ferðina.
- Fr. Ýr forvitna.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli