Corky var drengur góður
Við Edda sitjum heima og spjöllum. Eftir brúðkaupssögur kom að rifrildinu. Jared Leto, segir Edda, á að hafa leikið í My life goes on ásamt Corky. Ég var nú ekki á sama máli, ha, hvað meinaru stelpa? Ég reyndar hélt að þátturinn hafi heitirð "The Corky Show." Svo komumst við að hinu sanna. Hann Jared okkar lék í My so called life með Claire Danes. En báðir voru þetta mínir uppáhaldsþættir í gamla daga.
Spádómur sagði að það eru víst 2 menn í mínu lífi. Einn er brynjaður og hátt settur en hinn er ung sál sem er mikill hugsjónamaður. Hann kemur úr lægri stétt en hinn. Hann þarf að fara mjög varlega og passa sig í hverju skrefi. Hann hefur einnig lent í mikilli ástarsorg. Ég aftur á móti er í góðum málum, er að átta mig á því hvert ég stefni og get vel skilgreint sjálfa mig. Allt á réttri leið. Wheel of fortune kom í restina. Mjög jákvæð spá sagði kella.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli