10.8.05

Firring

Er að skrifa ritgerð um firringu í nútíma samfélögum og Karl Marx.
Fólk lifir í samfélagi stofnanna þar sem allir eru skorðaðir niður í ákveðin ferli. Erum öll ólík og höum mismunandi þarfir. Það koma upp veikindi sem stundum eru litin hornauga, t.d. geðveiki álitin sem aumingjaskapur. Allir krakkar þurfa að skrifa sama stílinn, hlaupa sömu vegalengdina í leikfimi. Þeir mega ekki byrja að vinna fyrr en á ákveðnum aldri; Forræðishyggja.
Afskipti þeirra ráðandi eru oft meiri en fólk gerir sér grein fyrir. Hugsa með sér að þetta bara sé svona, hafi alltaf verið og muni alltaf vera svona. Treysta á reglurnar. Það sem áður var er úrelt, stöðugt er sótt eftir breytingum og allt verður fljótt úrelt. Ekkert hlustað á aldraða, þeir vita svosem ekkert. Því nú höfum við loksins fundið sannleikann: Já, auðvitað er þetta svona!! Breytingar eru örar í nútíma samfélögum, en oft gleymist að ekki er til einhver einn sannleikur og engin leið er endilega best. Til eru margar leiðir að leiðarenda.

-Kannski er þetta bull.. kannski ekki. - any comments?

Engin ummæli: