heppin
Ég er ekki að fara að deyja úr banvænum augnsjúkdóm. Og ég er heldur ekki með neinn augnsjúkdóm. Langflestar heimsóknir til auglækna eru útaf þessum einkennum sem ég fann fyrir. Fór s.s. áðan og fékk að heyra að þetta er ekkert hættulegt og það þarf ekkert að óttast. Augnbotnarnir, glerbotnarnir eða glerhimnan er eitthvað gruggug eða gluggug... (hann orðaði þetta á svo framandi máli og mér var svo létt að heyra að þetta væri allt saman í lagi að ég náði því ekki almennilega hvað hann kallaði þetta). En ég var farin að halda að ég myndi missa augun og ég veit ekki hvað. (vann eitt sumar á Augndeild Landspítalans, og sá margt miður gott þar sem hleypti ímyndunaraflinu af stað) Hann sagði reyndar að ég væri með óvenju mikið grugg, miðað við aldur, en ég þyrfti engar áhyggjur að hafa.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli