Dagur
Hvernig væri að blogga um dag í lífi sínu, og segja nákvæmlega frá öllu sem maður gerði. ÖLLU. Það væri sko alvöru dagbók.Ég labbaði að útidyrahurðinni, frekar hægt, því ég fór að hugsa um hvort ég væri með húslyklana mína veskinu. Mér fannst eins og þeir væru í vasanum á bláu flaueliskápunni. Ég opnaði veskið og sá strax að lyklarnir voru þar í vinstri hliðarvasanum. Ég lokaði svo veskinu aftur. Þegar ég leit upp var ég alveg að koma að útidyrahurðinni, þá rétti ég út hægri hendina og tók svo bara laust í húninn. Þegar ég var alveg komin að hurðinni þá snéri ég hurðarhúninum snögglega til hægri.
Ég held ég sé orðin elliær.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli